11.6.2008 | 12:48
...ég meina tad...
..jæja..
Skil ekki alveg pointid í tessu. Best ad taka ekki tessa í "vantrú" alvarlega.
Teir vilja ad borin sé virding fyrir teim en svo eru teir med skítkast á kristnatrú. ekki alveg málid ad ég held
![]() |
Svarthöfði á vegum félagsmanna í Vantrú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nákvæmlega, þeir eru alltaf að bulla um að virðing sé áunnin en ekki sjálfgefin svo ég skil ekki heldur pointið með þessu hjá þeim.
The suburbian, 11.6.2008 kl. 12:56
Þetta er fyndið. Það er gaman. Ef þið fattið ekki djókið, þá eruð þið einfaldlega fólk sem fattar ekki djókið. Og það er allt í góðu, okkur þarf ekkert að finnast það sama fyndið (í frjálsu landi).
Og vissulega er mikið um skítkast í kristna trú, vegna þess að nýlega er það komið í tísku að tala um trúmál opinskátt. Sannleikurinn er sá að það er rosalega mikið af fólki sem hefur aldrei fundist kristin trú meika mikið sens, en er núna fyrst að finnast í lagi að tala um það upphátt, í stað þess að tala bara ekkert um það og fá aldrei athugasemdir sínar útkljáðar.
Þá kemur í ljós að það er til slatti af kristnu fólki sem telur trúfrelsi þýða að enginn gagnrýni trú þeirra. Ég saka ykkur ekki um að vera þannig, en það er til fullt af þannig fólki. Ég las grein í Morgunblaðinu frá eldri konu sem fannst þetta grín í Síma-auglýsingunni vera árás á rétt fólks til að hafa sínar trúarskoðanir í friði. Það er þetta hugarfar sem ótrúaðir gagnrýna sem óverðskuldaða virðingu fyrir gagnrýni sem ætti ekki að vera svona mikið tabú.
Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:08
Þetta kom svolítið vitlaust út í endann, ég hefði átt að segja; "Það er þetta hugarfar sem er gagnrýnt sem óverðskuldaður heilagleiki raunverulegra skoðana um lífið og tilveruna, sem ætti ekki að vera svona mikið tabú.´" - svona skil ég gagnrýnina allavega þegar menn tala um óverðskuldaða virðingu.
Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:11
Mér finnst þetta ótrúlega fyndið og frábært tækifæri sem vantrú.is veitir kirkjunni, sbr. þessi færsla
Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 14:17
Hvernig er það...hafa þessir prestar sýnt þér og þínum líkum mikla virðingu hingað til? Hvernig skilgreinir þú skítkast? Er það t.d. ekki skítkast að tala um að giftingar samkynhneigðra jöfnuðust á við að henda hjónabandinu á sorphaugana?
Svo skil ég ekki hvernig þú færð það út að þetta uppátæki sé "skítkast á kristna trú"!??? I versta falli er verið að hæðast að þessum snobbuðu prestum sem ganga um í síðkjólum eins og dragdrottningar á gay pride!
Come on maður! Ekki vera húmorslaus plebbi!
Róbert Björnsson, 11.6.2008 kl. 19:13
ég er alfeg sammála þér Palli, þetta var alfeg fyndið en óviðeigandi. En kristna kirkjan tók aldeilis vel á þessu (sbr. kommentið hans Carlos) og ég hef ekki orðið vör við að það séu einhver læti hjá kirkjumálaráðuneytinu út af þessu. það er alfeg rétt sem Helgi Hrafn segir að það sé komið í tísku að ræða opinberlega um trúmál (kominn tími til) en ef betur er að gáð þá eru það ekki alfeg öll trúfélög sem "fá á sig gagngrýni" eða "óverðskuldaða virðingu"
mér þætti gaman að sjá svipað "djók" gert við múslímavini okkar.
og jón grétar hvenær hefur kirkjan verið með "hatursfullan boðskap um vantrúaða"? róbert hvað kemur það málinu við að Palli er samkynhneigður? á hann að afneita trúnni sinni vegna þess hvernig hann er? ég veit ekki til þess að nokkur prestur hafi sýnt honum óvirðingu og þú getur kallað hann mörgum nöfnum en "húmorslaus plebbi" er svo langt frá sannleikanum að það er næstum því fyndið.
tóta hellubrautar (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 12:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.