14.4.2007 | 10:04
Skák og mát!
Með hverju árinu sem líður tel ég að fólk hljóti að sjá meir og meir að Vladímír Pútín forseti Rússlands er oft á tíðum með tilburði einræðisherra. Lýðræðið á undir högg að sækja og KGB tilþrif forsetans eru stórhættuleg fyrir nauðsylegri þróun lýðræðisins í Rússlandi.
Ég tel að lýðræðið eigi nú sem aldrei fyrr undir högg að sækja í Rússlandi og er þetta gott dæmi um það. Að stjórnarandstaðan meigi ekki halda mótmælendafund er skýrt dæmi um það.
Margir vinir Garrí Kasparov hafa hvatt hann að láta af afstöðu sinni til stjórnvalda og helst flytja úr landi. En Garrí er baráttumaður og svíkur ekki hugsjónir sínar og vill leggja sitt af mörkum til að koma lýðræðinu á.
Ég held að þetta hafi verið snjall leikur hjá Kasporov og þar sem hann er skáksnillingur hlýtur hann að sjá nokkra leiki fram í tíman.
![]() |
Garrí Kasparov handtekinn í Moskvu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.