undarlegt!

Ég fór á Hressó í dag, sat þar við vegginn sem snýr að Pravda. Sat með vinkonu minni að leita að íbúð í köben á alheimsnetinu. Fengum okkur sveppasúpu og ég bölvaði því í síðustu færslu að ég héldi að Hressó hafi ekki lækkað verðið í sínum matseðli.

Ég hjólaði svo uppí glæsibæ rétt eftir að eldurinn blossaði út. 

Þetta er sorglegt. Finnst þetta mjög svo dapurt. Vona innilega að húsin verði endurreist í upprunalegri mynd. Uppbyggingin á Fjalarkettinum og gamla fógetanum er til fyrirmyndar og eigum við því að hugsa áfram og nýta þau tækifæri, ef svo að orði meigi komast, þessi eldsvoði hefur skapað.

 


mbl.is Slökkvistarfi lokið að mestu og hreinsunarstörf hafin í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon


Athugasemd:
Einhver keypti víst allan reitinn nýlega.  Áhugi hefur verið fyrir því að fá að rífa eða flytja þessi gömlu hús og byggja ný og stærri...enda lóðin mjög verðmæt...- en leyfi ekki fengist.  Ef húsin eyðileggjast í bruna má byggja stæri hús...= gróði.  Lóðin er gífurlega verðmæt.  Ótrúleg tilviljun?  Reiknið nú út.

Jóhann (IP-tala skráð) 19.4.2007 kl. 01:00

2 Smámynd: Páll Einarsson

Já þetta hljómar ekki tilviljunarkennt! En hann gamli "góði" Villi fullyrti að það haldið yrði í þessi gömlu hús og þau endurreist.

hummm

Páll Einarsson, 19.4.2007 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband